Bókagerðin Harpa
Ýmis sérprentun
Aftur á: Sérprentun
Borðdagatöl
Við bjóðum ýmsar stærðir og útfærslur af borðdagatölum. Dagatölin er hægt að aðlaga að óskum hvers og eins og hægt er að prenta auglýsingar og merki fyrirtækja inn á dagatölin.
Boðskort, diskamottur, matseðlar o.fl.
Við bjóðum upp á prentun á eftirfarandi vörum:
Bókamerki og ísskápaseglar
Bókamerkin klemmast utan um blaðsíður og þunn segulfilma á bakhliðinni tryggir að þau detta ekki úr bókinni. Þau eru framleidd úr plasthúðuðum pappír og eru því traust og endingargóð.
Ísskápasegullinn er gerður úr þunnri segulfilmu og plasthúðuðum pappír. Við getum einnig afgreitt bókamerkin og seglana í sellófanpoka með spjaldi og við framleiðum merkin í hvaða stærð sem er og getum sent verðtilboð fyrir viðkomandi stærðir.
Ekki er um lágmarks framleiðslumagn að ræða og við gerum sýnishorn samkvæmt óskum ykkar án nokkurra skuldbindinga. Einungis þarf að senda okkur myndefni á tölvutæku formi.
Bæklingar
Við prentum samanbrjótanlega upplýsingabæklinga í öllum stærðum og gerðum.
Merkispjöld
Við bjóðum ýmsar stærðir og útfærslur af merkispjöldum.
Minnismiðakubbar
Hér fyrir neðan má sjá sýnishorn af minnismiðakubbum sem við getum sérprentað. Merki fyrirtækisins á miðunum gerir kubbana að áhrifaríkri auglýsingavöru.
Nafnspjöld og umslög
Við prentum nafnspjöld, bréfsefni og umslög.
Nema- og félagakort
Við bjóðum nema- og félagakort með t.d. áprentuðu nafni, kennitölu og/eða félagsnúmeri. Kortin geta verið með eða án plasthúðar en hún gerir þau endingarbetri. Á bakhlið geta t.d. verið auglýsingar.
Veggdagatöl
Við framleiðum ýmsar stærðir og útfærslur af veggdagatölum.
Dagatölin er hægt að aðlaga að óskum hvers og eins og hægt er að prenta auglýsingar og merki fyrirtækja inn á dagatölin.